KPF
Blog sem við lesum
19.12.2006 13:40:08 / unnur

Prinsessan er komin í heiminn!!

Já nú er allt að ske enda komnir ehumm "nokkrir" dagar frá síðustu færslu hmm ætli sé ekki best að hafa þetta í einhverju hnitmiðuðu punktaformi vegna ítrekaðra tilmæla frá heiðurslimnum að fá fréttir á síðuna  !!

Hmm hvar ætli sé best að byrja !! jú á byrjuninni !!

  • Króatíuferðin var einu orði sagt stórkostleg - tvær vikur í afslöppun með góðum mat og góðum veigum svo ekki sé talað um félagsskapinn sem var bestur.  Tja það sem situr fastast í hausnum á mér varðandi ferðina er stórkostleg ferð til Feneyja, mögnuð háloftaferð í fallhlíf og allt hitt í rauninni sem ekki er tími né nenna að skrifa um hér!! Takk fyrir frábærar tvær vikur :D
  • Nú heiðurslimurinn fór heldur betur með "mest" úr ferðinni þar sem hann kynntist henni Aldísi sem er dásamleg stelpa -  auðvitað úr Árbænum en þaðan kemur bara snilldar fólk.  Þau skötuhjúin hafa nú fest kaup á íbúð í Kópavoginum og allt í lukkunar standi hjá þeim enda á lífið að vera þannig :)
  • Nú hvað skeði svo - jú Inga hélt áfram að vera ólétt ...
  • Nú Jóhanna Kaupalki keypti sér raðhús, flutti inn í það og það er risa kósý hjá henni eins og hennar er von og vísa !! hún setti líka bílinn í viðgerð, setti hann á sölu og ekur nú um á rauðri jólabjöllu !!
  • Nú Inga hélt aðeins áfram að vera með barni....
  • Hmm hlutaðeigendur verða bara að afsaka er ég gleymi einhverju en ætla sko ekki að gleyma að segja frá nýju glæsikerrunni minni sem er Corolla 2004 árgerð hvít að lit - ógó gaman að vera á "nýjum" bíl !!
  • Nú Inga hætti svo loksins að vera ólétt þann 18. desember þegar prinsessan kom í heiminn - litlar 21 mörk eða 5200 grömm og 55 cm - engin smá prinsessa.  Alveg spurning hvort Inga fermi bara ekki um páskana !! Nú KP og viðhengi þeirra óska Ingu að sjálfsögðu til lukku með krógann og vona að allt gangi þeim í haginn í framtíðinni og hún verði þeim björt !!

Annað var það ekki í bili - verið góð hvert við annað um hátíðina.

Jólaknús

Unnur


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 00:39:12 / unnur

Jei jei jei !!!

.... loksins er komið að því eftir 143 daga niðurtalningu að meðlimir og heiðurslimur KPF að nokkrum partypoopers undanskildum eru í þann mund að stíga í borð í flugvél sem mun flytja okkur alla leið til lífsins lystisemda í Króatíu :) Þar ætlum við að njóta lífsins í FULLAR tvær vikur og biðjum ykkur hin sem heima sitjið vel að lifa og megið þið bíða spennt þar til krassandi ferðasagan verður rituð þegar heilsan leyfir eftir að heim er komið.   

Lifið heil !!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 09:41:30 / unnur

Verslunarmannahelgin !!

Já þá er hún komin helgin sem landsmenn hafa beðið eftir í gríðarmikilli eftirvæntingu frá því síðustu verslunarmannahelgi lauk! Hvert á að fara, með hverjum, hvernig er spáin og hverjir verða að spila.  Þegar yfir lýkur skiptir litlu máli hvar maður var, með hverjum, veðrið var allstaðar eins (það er að segja öll veður alls staðar) og eins og það skipti máli hverjir voru að spila - þetta var bara ógó gaman!!

KP ætla nú flestar að skella sér austur á bóginn um helgina og í flestum tilfellum á að nota helgina til útreiða.  Við erum þó ekki eins óþolinmóðar og heiðurslimurinn sem skellti sér að því er virðist í annað tímabelti austur á landi og tók forskot á sæluna í nótt.  Fannst nú ekkert tiltökumál að slá á þráðinn til okkar sem sváfum okkar fegrunarsvefni - ekki það að við þurfum á honum að halda - til að segja okkur fréttir af hestakaupum sem hann hafði þá nýlega handsalað KOMMONN klukkan var 04:35 á staðartíma !! Guð einn veit hvað hún var í Landeyjunum!! Það má nú líka fylgja sögunni að við snérum okkur allar á hina hliðina :)

Æi hef ekki frá meiru að segja - það les þetta hvort eð er engin !!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 10:52:41 / unnur

Jei það er komið sumar :D

Já viti menn það er bara komið sumar á Fróni og að tilefni dagsins fór ég djúpt í viðjar fataskápsins og dró út stuttbuxur því í dag eru mörg mjög svo merkileg og mikilvæg verkefni sem vinna skal utandyra!! Ég veit að aðrir meðlimir KPF og grúppíur eru innivinnandi fólk að langmestu leyti og ég er alls ekki að segja þetta til að styggja nokkurn mann - múhahahahah- alls ekki :)

Annars hefur lítið á daga mín drifið síðan síðast en það er spurning með aðrar KP hvort þær álíti líkt og heiðurslimurinn að félagið sé dautt og ég verð að segja það að sem lengi vel sitjandi formaður þessa félags þá hryggir það mig geigvænlega að hafa ekki verið látin vita af útförinni hafi hún í raun farið fram - sem ég enn og aftur tek fram á sér enga raunverulega ástæðu í þessu guðvolaða raunveruleika sem við lifum og hrærumst í alla daga !!

Annars jú mig langar að deila svoltlu með ykkur.  Þannig er að í gærkvöldi hóstaði ég saumaklúbb fyrir grunnskólavinkonurnar og þar var líkt og áður ýmislegt skeggrætt og hin ýmsustu vandamál heimsbyggðarinnar leyst yfir einni Betty og nachomixi...  Við töluðum líka um vinsælt topic sem eru mannanöfn og ástæða þess að sum eru leyfð en önnur ekki.  Ég meina kommonn það má skíra Mist og Eik sem eru hvoru tveggja í rauninni mjög fín nöfn nema þegar blessað stúlkubarnið heitir þessum tveimur nöfnum - ég meina átti MIST EIK kannski bara að fara í lakið ?? Tískubylgjur í þessum annars mikilvæga mómenti í lífi hvers einstaklings eru hættulegar þegar komið er að vissum punkti. 

WOW!!!

bara 35 dagar í sól og guðaveigar :D nei bíddu við sólin er hér rétt fyrir utan - best að fara að sinna mikilvægu utandyraverkefnunum mínum :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:42:00 / unnur

Þetta félag er sko ekki dautt !!

Ég neita að taka því að útförin hafi farið fram þrátt fyrir smá fling hjá félagsmönnum !!

Landsmótið kom og fór með hrikalegu tjútti og gamani!! Hestaferðin kom líka og fór en ég skrapp á Hveravelli og til baka með smá krúsídúllum um nágrennið og var viku að því - hrikalega skemmtilegt.  Magnað samt hvað gekk mikið á við töpuðum hestum í þrígang inn á sama túnið en á því voru þrjú hlið sem hestarnir fóru inn og út úr og eftir það út og suður - ekki hress með okkur bóndinn á þeim bænum.  Svo mættum við Íshestahópi sem var með 100 hrossa rekstur en fannst það ekki nóg því 11 hross frá okkur strauuðu með þeim frá afréttargirðingu á Kili niður að Gullfossi - þriggja tíma seinkunn þar en það var í keii því veðrið var svo dásamlegt :) Svo fannst hrossunum okkar ekki gaman í Kerlingarfjöllum því þau komust úr girðingunni sem var nú ekki upp á marga fiskana og tékkuðu á tjaldstæðinu - allt fór nú vel að lokum ;)

Svo er nú líka gaman að segja frá því að eftir 38 daga verð ég, þessi litla og heiðurslimurinn að sleikja sólina og drekka í okkur guðaveigar í Króatíu jimin hvað ég hlakka nú til.

Jæja nenni ekki að blaðra meira - vildi bara koma í veg fyrir frekari fréttir um útför þessa félags sem á ekki neinar stoðir í raunveruleikanum. 

Amen á eftir efninu,
Skvettan !!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 19:59:42 / gudrun

Þórsmörk

Jæja loksins gerðist eitthvað í mínu fábrotna lífi.  Ég fór með vinnunni inn í Þórsmörk um helgina.  Við vorum reyndar bara 13 en þarna var samankomið landsliðið í ryk-og fóðurdreifingardeildinni og skrifstofunni.

Skálaverðirnir eru tveir karlmenn sem deila c.a 8 fermetrum af vistarverum.  Brokeback Mountain if I ever saw one.

Við lentum í Básum um miðjan dag í gær í snjókomu. Við vorum nú soldið að vona stelpurnar að kannski vildi svo vel til að það væri þar sundlið eða fótboltalið karla en nei, meira svona landsliðið 60 ára og eldri, viss vonbrigði.  Geðveikt grill og stórkostleg framistaða í drykkju sem kemur svo sem ekkert á óvart þegar þessi hópur á í hlut.  Sól, logn og frost í morgun klukkan sjö. Þynnkunni var svo boðinn birginn með göngu inn í Stakkholtsgjá á leiðinni heim með misjöfnum árangri þó.

Hins vegar er það umhugsunarefni að eftir heilan sólarhring í engu símasambandi um helgi var ég búin að fá eitt sms þegar ég komst aftur í símasamband, og nota bene var það frá Sollu sem var að hrósa nýútkomnum konfektkassa með mynd af hestunum okkar á. 

Ég er annars alveg óhemju kát að koma hvergi nálægt framkvæmd Reykjavíkurmeistaramóts þetta árið því það logaði víst allt í kærum og almennum leiðindum svo ekki sé minnst á vöntun á starfsfólki.

Ekki halda niðrí í ykkur andanum þangað til að ég skrifa næst ;)

Kveðja, formaðurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 13:57:27 / unnur

Þetta gengur ekki lengur!!!

Til að heiðra minningu KP sem yfirgefið hafa þennan bloggheim sest ég hér niður og rita nokkur orð um það sem á daga mína hefur drifið undanfarið.  Síðast skrifaði ég um að ég hafi nýverið tekið inn jálkana mína gömlu sem eru alveg í gírnum og við góða heilsu í nýja húsinu!! Átakið okkar Jóhönnu er að líða undir lok á einhverjum vígstöðvum en á öðrum skal haldið áfram enda farin á sjást árangur á okkur, þá þýðir ekkert að hætta eða hvað ?? Ég lagði til við Jóhönnu að lagðar yrðu undir fimm flöskur að eðalhvítvíni í þetta skiptið en hef fengið loðin svör og viðbrögð við þeirri uppástungu - er það ekki eðlilegt að potturinn stækki með tímanum ??

Páskarnir komu og fóru með tilheyrandi útreiðum og veigadrykkju. Á Skírdag fór ég ein KP ríðandi í Hafnarfjörðinn - hvað er að verða um þetta merka félag - í gríðargóðum félagsskap sambýlismanna minna.  KP skelltu sér á gríðar ball um páskana og komust tiltölulega heilar út frá því þrátt fyrir mikið skrall en lausar við alla meiriháttar skandala.  Síðan kom sumardagurinn fyrsti án mikilli skandala nema hvað hluti KP lagðist í rúmið með tilheyrandi hósti og viðbjóði!! Kaupalkinn gerði sér lítið fyrir og verslaði gasgrill og bauð til veislu á óðali sínu í Víðidalnum.  Kræsingarnar létu ekki á sér standa en hið sama er ekki hægt að segja um gasgrillið fína.  Eftir heilabrot, blóð, svita og tár rann það upp fyrir Jó Jó að það vantaði mjög krúsíal rær í grillið sem fyrir vikið var ekki starfrækt.  Ekki svo mikil vandræði -ég keypti hina gerðina líka skipti bara á eftir (Smá Stellu innskot) því annað grill var sótt í snarhasti og veislunni haldið áfram langt fram á nótt!!  Framundan er frekara tjútt enda maí mánuður runnin upp með tilheyrandi vortjútti og því eins gott fyrir ykkur lesendur góðir (allir tveir) að fylgjast vel með gangi mála!! 

Jæja læt þetta duga í bili en minni á að það getur valdið vanda að hafa rétt fyrir sér á röngum tíma og að hæsti sjónarhóllinn yfir mannlegt líf er grafarbakkinn.

Bleeeee Skvettan !!  


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 09:59:43 / unnur

Blessuð sé minning KP ....

Svo virðist sem meðlimir KPF, að mér og heiðurslimnum undanskildum, hafi yfirgefið þessa bloggtilveru.  Líf þeirra er væntanlega svo innihaldslítið að til einskis þykir að rita um það hér :S Hmm eða er einhver önnur ástæða??  

Allavega þá lauk áskorun marsmánaðar í upphafi apríl og var það í þetta skipti ég sem hafði sigur af hólmi með 2,9 kg og 1/cm - ekki leiðinlegur sigur þar sem maður tapar um leið og maður sigrar.  Stubburinn var nú með einhverjar blammeringar og minnti mig á að ég hafi ekki sagt neitt þegar hún stakk upp á að kókflaska yrði að þessu sinni lögð undir - mér fannst grínið bara ekki svara vert og býst við þremur hvítvínsflöskum fyrr en síðar.  Svo vil ég bara svo það fari ekki fram hjá neinum hækka undirlögnina í fimm flöskur fyrir apríl mánuð!!

Ég tók gömlu jálkana inn um síðustu helgi og fór skeifnasprettinn á þeim báðum í gær.  Þeir hafa engu gleymt nema jú til allrar hamingju sýndi sá gamli enga hrekki og ílaði ekki neitt og var bara þrusu góður :) Nú er bara að koma þeim yngri í eitthvað form fyrir skírdagsreiðina - það er nú ekki lengi gert að koma gömlum klár í smá form. 

Annars fór ég í Borgarnes í gærkvöldi í hamingjusaumó sem var bara alveg bráðskemmtilegur.  Meðan ég dvaldi í Borgó slógu Skallagrímsmenn Íslandsmeistara Keflavíkur í Körfubolta úr undanúrslitum Íslandsmótsins og ljóst að Skallagrímur mætir því Njarðvíkingum í úrslitunum.  Ég fylgist nákvæmlega ekkert með körfubolta en er þess fullviss að Skallagrímsmenn hafi komist árfram vegna veru minnar í Borgarnesa þessa stundina :haha: Ég allavega ætla að eigna mér það svona næstu mínúturnar. 

Jæja nenni ekki að blaðra meira :)

Skvettan!


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 10:40:18 / unnur

Hmm náði flensan mér ?

Eftir hamingjupistil minn þar sem ég hélt því fram að flensan hefði ekki, þrátt fyrir þó nokkrar tilraunir, náð mér kom hún sjálfri sér og mér á óvart í gær og lagðist á mig fremur harkalega.  Held samt reyndar að þetta hljóti að hafa verið frekar fjarskyldur ættingi alvöru flensunnar því hún staldraði mjög stutt við.  Ég kom sem sagt heim úr vinnunni og var skítkalt og heimsótti Gustavsberg nokkuð oft og faðmaði hann einu sinni, svaf síðan í ca 15 tíma með nokkrum hléum sem nýtt voru til heimsókna og vaknaði stálslegin í morgun og er mætt til vinnu. 

Var næstum því búin að keyra á einn Pajero í morgunn sem lagt var fremur frjálslega ofan við aðkeyrsluna að Skautahöllinni og hefur nú sennilega verið þar í nótt enda ÍSTÖLTIÐ vinsæla haldið þar í gærkvöldi og reynslan hefur nú sýnt manni að þar er ekki bara drukkið vatn og nýmjólk yfir showinu.  Miðað við skrif á netmiðlum hestaheimsins er helst útlit fyrir að við sem ekki vorum á staðnum höfum misst af sýningu aldarinnar.  Heiðurslimurinn og kaupalkinn geta kannski sagt okkur hinum betur frá því. 

Jæja læt þetta duga á þessum næstum því gabb degi.

Skvettan (",)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 13:38:09 / unnur

Af bleikum skýjum og hamingju!

Heiðurslimnum er greinilega mjög annt um líf okkar KP og vill vera með á hreinu hvað um sé að ske.  Hann er haldinn þeim ranghugmyndum að við allar fljótum um á bleiku skýi en svo ég svari fyrir mig fer lítið fyrir þess háttar skýjum þrátt fyrir að ég hafi yfir engu að kvarta yfir í mínu lífi og er almennt sátt við allt og alla og nokkuð rík af hamingju.  Æi jiminn hvað þetta er eitthvað mikið pjú en samt sem áður alveg satt. 

Án þess þó að ég fari að skrifa fyrir aðrar þá veit ég að Jóhanna G. er að klikkast af miklu álagi í vinnunni auk þess sem hún reglulega leggur leið sína í Hafnarfjörðinn til að hjúkra viðhenginu, Jóhanna Þ. er fyrir miklu álagi í vinnunni en fer betur með það en hin Jóhannan kannski vegna þess að G. er í vinnunni alltof alltof lengi og sefur alltof alltof lítið - góð heilsa Jóhanna mín felst í góðum svefni -, Inga er með einhverja flensupest og á helst bara að liggja fyrir eftir að hafa heyrt í henni og nú Guðrún Katrín er obbbvíosslý að pirra sig eitthvað á Ríkisskattstjóra miðað við comment hennar á MSN. 

Sjálf passa ég mig á því að sofa nóg og sleppi öllum ferðum í Hafnarfjörðinn, stend bara mína plikt í minni vinnu og næ því á ágætis tíma svona yfirleitt en núna fer álagstíminn samt að hefjast, flensupestinn náði mér ekki í síðustu viku eftir að hafa verið samt að reyna og ríkisskattstjóri er í náðinni hjá mér enda búin að skila og sá að hann ætlar að "gefa" mér stóran pakka í ágúst sem kemur sér gríðar vel í Króatíu. 

Jæja best að fara að gera eitthvað

Unnur


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 09:19:36 / unnur

Sagan af puttanum!!

Já það er orðið mjööög langt síðan ég hef sett inn fréttir af puttanum sem er búinn að vera að angra mig undanfarna mánuði.  Um er að ræða baugfingur hægri handar en hann hefur verið mér til mikilla ama undanfarið.  Svo mikilla að ég meira að segja heimsótti lækninn tvisvar sinnum.  Hann gaf mér bara bólgueyðandi og sagði mér að hafa engar áhyggjur - ég væri allavega ekki með krabbamein!! En svo sem sagt í gær var ég farinn að taka eftir því að það var kominn einhver svartur blettur í kúluna sem var orðin býsna stór og því greinilega farið að blæða í "bólgunni".  Þá ákvað ég að ég skyldi nú hringja í doksa á morgun (í dag) og biðja hann gjöra svo vel að laga mig!! Þetta var líka illa vont. 

Síðan í morgun í miðjum teygjum í ræktinni þá fór ég að fikta í kúlunni og þá fer að vella út einhver vökvi svo ég kroppa aðeins meira þangað til að birtist glerflís sem ég dreg út og kemur í ljós að hún er alveg hálfur sentimetri á lengd og ágætlega breið.  Sem hafði sem sagt búið í baugfingri hægri handar undanfarna mánuði - eitthvað sem bólgueyðandi vinnur kannski ekki alveg á!! Já há þannig að framhaldssögunni af puttanum er þá vonandi lokið!!

En aðeins að helginni.  Föstudagskvöldinu var eytt í ammlisboði formannsins þar sem hún töfraði fram hvern dýrindisréttinn á eftir öðrum.  Grillaður beikonvafinn skötuselur, grillaðir sveppir og paprikur með gráðaosti, dýrindissalat, grillaðar kjúklingabringur, kartöflur í ofni og mögnuð kaka í eftirrétt.  Öllu skolað niður með guðaveigum af bestu gerð! TAKK FYRIR MIG!

Laugardagurinn var tekinn snemma enda Brúðkaup aldarinnar síðar um daginn og af nógu að huga, ræðusmíðar, myndashowundirbúningur, straua fötin, laga hárið, setja óaðfinnanlegt meik upp á feisið og fleira í þeim dúr.  Brúðkaupið var yndislegt og Tobba sagði jáááá og Toddi meira JÁ!! en fyrir öllu að þau svöruðu bæði játandi :lol: Veislan var ekki síður stórkostleg og stóð lengi og mátti vel finna fyrir henni langt fram á sunnudaginn hmm :S En mætti nú samt í ræktina og í hesthúsið alveg að drepast í baugfingri hægri handar.  

Þetta var í heildina litið alveg hreint dásemdarhelgi :)

Ble í bili,
Unnur


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 10:25:33 / unnur

The big three o helltist yfir formanninn!

Já formaðurinn er orðinn þrjátíu ára hvorki meira né minna og skiljanlega fyrst okkar KP að ná þeim árangri.  Hamingjuóskir með áfangann!!

Meðlimir KPF hafa fjárfest í gjöf fyrir ellismell hópsins - svona ef háellismellurinn er ekki talinn með.  Fyrirhuguð afmælisgjafaplön máttu víkja fyrir hefðbundnari gjöf enda hefur formaðurinn líst yfir vanþóknun sinni á hvers kyns óvæntum uppákomum.  To bad for her og okkur allar hinar líka.  :D:D:D:D

Annað var svo sem ekki ætlunin að koma á framfæri með þessari færslu annað en að óska formanninum til lukku með árin 30!!

Thats all for now !!

Unnur


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 14:56:45 / inga

Helgin!!!

Jæja það er nú orðin pínu síðan að ég skrifaði hérna inn um mitt viðburðaríka líf;)

Þó svo að þessi skattaskýrsluskil séu nú ekki flókin þá tekst manni yfirleitt alltaf að vera of seinn með þetta á fá frest. Ég reyndar er aumingi og geri þetta ekki sjálf heldur læt saklaust manngrey sjá um þetta fyrir mig. Maður er nú einu sinni týpískur íslendingur og enginn ástæða að breyta út af vananum með það:D

Helgin hjá mér var nú bara býsna róleg, Unnur og Jóga enduðu reyndar heima hjá mér á föstudeginum og skriðu niður í bæ seint og um síðir eða alveg þangað til að ég skutlaði þeim og höbbíinum hennar Jóhönnu til að ég gæti losnað við þetta pakk um hálf tvöleytið.

Laugardagurinn var ennþá rólegri eyddi deginum með því að labba uppí Breiðholt og fá kökur og með því hjá Braga vini mínum þar sem hann átti afmæli og fara síðan til afa gamla upp á spítala sem gerði reyndar ekkert annað en að tala um að hann hafi haldið að hann mundi enda í "ofninum" um nóttina. Eftir smá stund og umræðu um þetta fattaði ég loksins að umræðan um "ofninn" var líkbrennsluofninn...... Ánægjan meðal annars úr þessari heimsókn var reyndar að heyra kallinn skamma sjálfan sig fyrir þessa vitleysu að reyna að komast á hestbak með skammeli, sem ég var reyndar gríðalega ánægð með og var svo sem ekkert að skafa utan af því við hann en þá fór hann að tala um að hann yrði nú komin aftur á bak eftir c.a. tvo mánuði. Þá gafst ég bara upp, kinkaði kolli og sagði "já, já afi minn, ekkert mál. Þú ert nú ekki nema rétt níræður maður á besta aldri" sem varð til þess að létta lundina hjá gamla manninum og hlægja af vonleysi mínu:) Allavega gott að vita að bjartsýnin og létta lundinn er ennþá til staðar hjá honum.....

Sunnudagurinn já......... hann var...... skrautlegur:$ Ég labbaði uppá Players til að sjá leikinn og einnig til að fá mér bjórsopa svona rétt í tilefni dagsins og ég meina ég labbaði sko! Ennnnnnn þeir urðu víst aðeins fleiri en bara einn og tveir og Ingveldur Oddný endaði örlítið tipsí þetta kvöld og var "veik" á mánudeginum........ Það sem ég man af þessu kvöldi er að ég hringdi í mínar kæru vinkonur en önnur þeirra (Unnur) var með einhverja brundfyllisgremju og vildi ekkert við mig tala þó ég sé nú ALLTAF svo gríðalega skemmtileg í glasi. Hin (Jóga) aftur á móti fékk þessa fínu ástarjátningu frá mér. Já Unnur mín þú misstir sko af því góða mín;)

Ég ætla að labba aftur uppá Players í kvöld og fá mér VATN:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 10:14:19 / johanna

Stubburinn fyllir út

(x) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

(x) stolið bíl (ef bíll foreldra telst með)

(x) drukkið áfengi

(x) drukkið of mikið áfengi

(x) verið ástfanginn

(x)verið sagt upp af kærasta/kærustu

(x)verið rekin/n

(x)lent í slagsmálum (við fyrrverandi kærasta .... of löng saga.) 

(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum

(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n  

(x) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu

(x) skrópað í skólanum

(x) djammað á virkum degi

(x) mætt þunn/ur í vinnuna

(x) horft á einhvern deyja ef dýr teljast með

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi

(x) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x) farið á skíði

(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(x)legið á bakinu úti og horft á skýin

(x) búið til snjóengil

(x)haldið kaffiboð

(x) flogið flugdreka

( ) byggt sandkastala

(x)hoppað í pollum

(x) farið í "tískuleik"

(x) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik (ég var með Höddu í liði í bústaðnum...)

(x) verið einmana

(x) sofnað í vinnunni/skólanum

(x) notað falsað skilríki

(x) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta

(x) sofið undir berum himni

(x) verið kitluð/kitlaður

(x) verið rænd/rændur (svona kannski meira rænt frá mér. Engin saga um "Stik it Up þó" 

(x) verið misskilin/n

(x) klappað hreindýri/geit/kengúru (Ég hef sko farið í húsdýragarðinn líka) 

( x)farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

(x) verið rekin/n eða vísað úr skóla

(x) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

(x) borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið deja vu

(x) dansað í tunglskininu

(x) fundist þú líta vel út

( ) verið vitni að glæp

(x) efast um að hjartað segði þér rétt til

(x) verið gagntekin/n af post-it miðum

( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni (drulla = hrossaskítur)

(x) verið týnd/ur

(x) synt í sjónum

( ) fundist þú vera að deyja

(x) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik

(x) sungið í karaókí

(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(x) hringt símahrekk

(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (allavegana þar til að ég hætti að geta andað)

 

(x) dansað í rigningunni


(x) sofnað í bíó

( ) skrifað bréf til jólasveinsins

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

(x) vakað í sólarhring

(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

(x) kveikt bál á ströndinni/fjörunni

(x) komið óboðin/n í partý (Hafa ekki allir droppað inn einhvestaðar) 

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

(x) pissað úti


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 22:24:36 / gudrun

Ýmislegt sem þið vissuð ekki um formanninn.

Eitt skulum við hafa alveg á kristaltæru áður en uppljóstrarirnar hefjast að ég tek alveg út fyrir það að láta gera mig að fífli á þrítugsafmælisdaginn (sem og aðra daga) því að ég þarf ekki hjálp við það.  Bara svo að það komi fram og réttlæti alla hegðun mína skyldi sú aðstaða koma upp.

( ) reykt sígarettu

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

( ) stolið bíl

(x) drukkið áfengi

(x) drukkið of mikið áfengi

(x) verið ástfangin

(x)verið sagt upp af kærasta( )verið rekin/n

( )lent í slagsmálum

( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum

(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n  

( ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu

(x) skrópað í skólanum

(x) djammað á virkum degi

(x) mætt þunn/ur í vinnuna (x) horft á einhvern deyja ef dýr teljast með

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi (haha það held ég nú ekki…)

( ) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x) farið á skíði

( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(  ) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(x)legið á bakinu úti og horft á skýin

(x) búið til snjóengil

( )haldið kaffiboð

( ) flogið flugdreka

( ) byggt sandkastala

(x)hoppað í pollum

(x) farið í "tískuleik"

( ) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik

(x) verið einmana

(x) sofnað í vinnunni/skólanum

( ) notað falsað skilríki

(x) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta

( ) sofið undir berum himni

(x) verið kitluð( ) verið rænd/rændur

(x) verið misskilin/n

(x) klappað hreindýri/geit/kengúru (x)farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla (ekki alveg en úr tíma í 2. bekk í menntó)

( ) lent í bílslysi

(x) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

( ) borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið deja vu

( ) dansað í tunglskininu

(x) fundist þú líta vel út

(x) verið vitni að glæp

(x) efast um að hjartað segði þér rétt til

(x) verið gagntekin/n af post-it miðum

(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni (drulla = hrossaskítur)

(x) verið týnd

(x) synt í sjónum

( ) fundist þú vera að deyja

(x) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik

( ) sungið í karaókí

( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

( ) hringt símahrekk

( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (man nú ekki hvort það hafi frussast ÚT um nefið á mér…en amk langleiðina!)

(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni

( ) dansað í rigningunni

(x) sofnað í bíó

( ) skrifað bréf til jólasveinsins (já en kallinn svaraði aldrei en kom nú samt með það sem ég bað hann um, góðir kallar þessir jólasveinar)

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

(x) vakað í sólarhring

( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

( ) kveikt bál á ströndinni/fjörunni

(x) komið óboðin/n í partý

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

(x) pissað úti

Jæja þá vitið þið það. 

Góðar stundir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4